Veftré Print page English

Norðurslóðir á Milken þinginu


Forseti tekur þátt í panelumræðum um Norðurslóðir í sérstakri málstofu sem helguð var því málefni á Alþjóðaþingi Milken stofnunarinnar í Los Angeles. Fjallað var um aukinn áhuga ríkja í Asíu og Evrópu á Norðurslóðum, hlutverk Bandaríkjanna í ljósi væntanlegrar formennsku í Norðurskautsráðinu, atvinnulíf og fjárfestingar sem og málefni frumbyggja og nauðsyn vísindalegra rannsókna á bráðnun íss og jökla, m.a. í ljósi áhrifa á aukna tíðni ofsaveðra víða í veröldinni.