Veftré Print page English

Fjárfestingar og fjármálasamstarf á Norðurslóðum


Forseti á í tengslum við Milken Alþjóðaráðstefnuna fund með Scott Minerd, fjárfestingastjóra Guggenheim Partners, um aukið samstarf um fjárfestingar og atvinnulíf á Norðurslóðum. Scott Minerd flutti framsöguræðu á Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, sem haldið var í Reykjavík í fyrra, um viðskiptasamvinnu á Norðurslóðum en Guggenheim var meðal þátttökuaðila í Hringborði Norðurslóða. Einnig var fjallað um skipulag slíkra samræðna og tengsla á Norðurslóðum á komandi árum, m.a. þing Arctic Circle sem haldið verður í Reykjavík í haust.