Veftré Print page English

Hafverkefni Google


Forseti á fund með hópi stjórnenda hafverkefna Google um þau viðfangsefni sem aukin bráðnun íss á Norðurslóðum mun skapa á komandi árum, m.a. með stækkun hafsvæða. Einnig var fjallað um reynslu Íslendinga af fullnýtingu sjávarafla og framleiðslu margvíslegrar vöru úr inniflum og roði. Þá var einnig fjallað um tækni sem gert gæti almenningi kleift að fylgjast með ferðum hvala frá Íslandi til fjarlægra heimshafa.