Veftré Print page English

Spirit of Humanity. Setning


Forseti flytur ávarp við setningu Spirit of Humanity ráðstefnunnar sem haldin er í Hörpu. Þetta er í annað sinn sem ráðstefnan er haldin á Íslandi og eru þátttakendur frá 40 löndum. Í ávarpinu lagði forseti áherslu á samstöðu og gagnkvæman skilning þjóða í milli, mannúð og samhjálp; rakti hvernig Íslendingar bregðast við hamförum í náttúrunni með því að standa saman og styðja hverjir aðra, bæði í byggðarlögum og meðal þjóðarinnar allrar.