Veftré Print page English

Viðskiptafræðinemendur og Barnaspítali Hringsins


Forseti er viðstaddur og flytur ávarp þegar árangur af söfnun nemenda í viðskiptafræði við Háskóla Íslands er afhentur Barnaspítala Hringsins. Átakið var liður í námskeiði við viðskiptafræðideild skólans og söfnuðust rúmlega níu milljónir króna. Með söfnuninni var lögð áhersla á nýtingu þekkingar í þágu raunhæfra verkefna, samfélagslega ábyrgð og samskipti við ýmis svið þjóðfélagsins.