Veftré Print page English

Alþjóðaforseti Lions


Forseti á fund með Barry Palmer, alþjóðaforseta Lions, sem heimsækir Ísland, og forystusveit Lionshreyfingarinnar á Íslandi. Rætt var um starf hreyfingarinnar víða um heim sem og hlutdeild Lionshreyfingarinnar í íslensku samfélagi, samstarfi innan byggðarlaga og eflingu margvíslegra velferðarmála. Þátttaka í hreyfingunni hefur vaxið mjög í ýmsum löndum Asíu en Lionshreyfingin á Norðurlöndum hefur einnig unnið saman að ýmsum verkefnum.