Veftré Print page English

Sendiherra Indónesíu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Indónesíu á Íslandi, Yuwono Putranto, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um vaxandi samvinnu ríkjanna á sviði jarðhitanýtingar sem og sameiginlega hagsmuni af varðveislu auðlinda hafsins og eflingu alþjóðlegs samstarfs um málefni þess. Indónesía býr yfir ríkulegum jarðhita og efnahagslögsaga landsins er meðal stærstu yfirráðasvæða á hafi. Í þessu skyni gætu Jarðhitaskóli og Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi komið að góðum notum með þjálfun sérfræðinga og stjórnenda frá Indónesíu.

iMG_8052 Indónesía