Veftré Print page English

Sendiherra Tyrklands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Tyrklands, Esat Götürk, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um vaxandi áhuga Tyrklands á að nýta ríkulegar auðlindir á sviði jarðhita og þátttöku íslenskra fyrirtækja í þeim sem og áhuga Tyrklands á þátttöku í þróun Norðurslóða og aukna samvinnu við Ísland. Þá var einnig fjallað um þróun mála í nágrenni Tyrklands, langvarandi átök og þörfina á víðtækum lausnum sem og samstarf ríkjanna við Svartahaf á sviði orkumála. 

 

640pix__MG_8017Tyrkland