Veftré Print page English

Samvinna Grænlands og Íslands


Forseti tekur á móti þátttakendum í viðburðum á vegum Grænlensk-íslenska viðskiptaráðsins og Grænlandsdaga sem haldnir hafa verið á Íslandi. Í ávarpi áréttaði forseti mikilvægi vaxandi samvinnu Grænlendinga og Íslendinga, áhrifin af auknum umsvifum á Norðurslóðum og þau fjölmörgu tækifæri sem sú þróun felur í sér fyrir nágrananna í norðri.