Veftré Print page English

Vínlandsrannsóknir


Forseti á fund með Birgittu Wallace um rannsóknir á byggðum norrænna manna á L'Anse aux Meadows í Kanada og hvernig þær staðfesta dvöl íslenskra og grænlenskra íbúa á þessu svæði fyrir um þúsund árum. Einnig var fjallað um hvernig siglingar víkinga um norðurhöf og fljót Norður-Evrópu hefðu fyrir þúsund árum skapað samgöngur, viðskipti og verslun frá Rússlandi um Norðurlönd til Norður-Kanada, svæði sem nú hefur fengið nýjar áherslur í ljósi aukinnar samvinnu á Norðurslóðum.