Ísland og American-Scandinavian Foundation
Forseti á fund með Kristjáni Tómasi Ragnarssyni, stjórnarmanni í American-Scaninavian Foundation, sem eru samtök í Bandaríkjunum sem unnið hafa að málstað, menningu og hagsmunum Norðurlanda þar í landi um áratugi. Aðalsamkoma ASF verður haldin í byrjun maí í New York og verður Ísland þá í heiðurssessi. Einnig var á fundinum fjallað um tengsl við byggðir fólks af íslenskum ættum víða í Bandaríkjunum.