Veftré Print page English

Björgunarsveitin Ársæll


Forseti tekur þátt í hátíðarhöldum í tilefni af sjötíu ára afmæli Björgunarsveitarinnar Ársæls og vígslu hinnar stækkuðu björgunarmiðstöðvar Gróubúðar á Grandagarði. Forystumenn Ársæls, Slysavarnadeildarinnar í Reykjavík og Landsbjargar fluttu ávörp við athöfnina, biskup Íslands vígði björgunarmiðstöðina og karlakór Sjómannaskólans söng.