Háskólinn á Akureyri. Norðurslóðasamstarf
Forseti á fund í húsakynnum Háskólans á Akureyri með stjórnendum skólans, fulltrúum ýmissa fræðasviða og fulltrúum stofnana og samtaka sem vinna að málefnum Norðurslóða á Akureyri. Rætt var um árangurinn af þingi Arctic Circle, Hringborðs Norðurslóða, í Reykjavík í fyrra, dagskrárefni næsta þings sem haldið verður í september og hvernig þessi vettvangur getur nýst íslensku fræðasamfélagi og öllum þeim sem beita sér í málefnum Norðurslóða.