Veftré Print page English

Rannsóknarþing Norðursins


Forseti á fund í Háskólanum á Akureyri með fulltrúum Rannsóknarþings Norðursins, sem stofnað var fyrir fjórtán árum, en skrifstofa þess hefur verið innan vébanda háskólans. Rætt var um þátttöku Rannsóknarþingsins í Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, og verkefni þess á komandi árum, einkum framlag þess til að greiða götu ungra vísindamanna og fræðimanna sem vilja helga sig Norðurslóðum.