Veftré Print page English

Ísland, Pakistan og Indland


Forseti ræðir við Fatimu Bhutto, rithöfund og blaðamann frá Pakistan, sem vinnur að greinaflokki um Ísland fyrir indverskt tímarit. Rætt var um áhrif íslenskrar náttúru, samfélags og menningar á ferðamenn og gesti frá Asíu. Þá var einnig fjallað um þróun mála í Pakistan, samband landsins við Indland og bók höfundar um örlög fjölskyldu hennar.