Veftré Print page English

Keppnisgreinar á Ólympíuleikum


Forseti fylgist í dag og í gær með keppnisgreinum á Vetrarólympíuleikunum í Sochi ásamt menntamálaráðherra, forseta ÍSÍ og framkvæmdastjóra. Þá heimsótti forseti keppnissvæði og íbúðaþorp þeirra sem keppa í skíðagöngu og hitti fánabera íslenska keppnisliðsins, Sævar Birgisson, Birgi Gunnarsson föður Sævars, sem einnig er íþróttamaður, og Andra Stefánsson fararstjóra íslenska liðsins. Þá átti forseti einnig ásamt menntamálaráðherra og forystu ÍSÍ fróðlegar viðræður við forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar, Thomas Bach, um undirbúninginn að leikunum og þá alþjóðlegu umræðu sem farið hefur fram um þá. Myndir.