Vetrarólympíuleikarnir í Sochi
Forseti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú hafa þegið boð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Alþjóðaólympíunefndarinnar um að vera vidstödd upphaf Vetrarólympíuleikanna í Sochi. Forsetahjónin munu sækja móttökuathöfn fyrir íslensku keppendurna, setningarhátíð leikanna og fylgjast með keppnisgreinum fyrstu dagana. Jafnframt mun forseti eiga fundi með nokkrum þjóðarleiðtogum sem einnig sækja leikana.
31. janúar 2014