Veftré Print page English

Þróun gagnavera


Forseti heimsækir gagnaverin Verne Global í Ásbrú á Keflavíkurflugvelli og Thor Data Center í Hafnarfirði til að kynna sér þróun gagnavera á Íslandi, vöxt þeirra á undanförnum árum og tækifæri í framtíðinni. Fjöldi erlendra og innlendra aðila nýtir sér nú þjónustu þessara gagnavera og vaxandi áhugi er á því að geyma gögn á Íslandi og vinna með þau í íslenskum gagnaverum en slíkt styrkir einnig önnur hugbúnaðarfyrirtæki, verkfræðistofur og framkvæmdaaðila. Bæði fyrirtækin eru um þessar mundir að stækka húsnæði sitt og stefna að enn frekari vexti á næstu árum. Mynd.