Veftré Print page English

Hádegisverður Washington Post


Forseti flytur ávarp um þróun Norðurslóða í hádegisverði sem Washington Post heldur í tengslum við Alþjóða efnahagsþingið, World Economic Forum, í Davos. Hádegisverðinn sóttu fjölmargir áhrifamenn í bandarískum stjórnmálum, fjölmiðlum og atvinnulífi ásamt ýmsum forystumönnum á alþjóðavettvangi. Einnig fluttu ávarp í hádegisverðinum forseti Mexíkós Enrique Peña Nieto, forseti Ísraels Shimon Peres, Rania drottning Jórdaníu, forseti Rúanda Paul Kagame og öldungadeildarþingmaðurinn John McCain.