Veftré Print page English

Íslenskt hugvit í Miðausturlöndum


Forseti er viðstaddur opnun svæðisskrifstofu hugbúnaðarfyrirtækisins LS Retail í Dubai en henni er ætlað að sinna Miðausturlöndum, Indlandi og Afríku. Þúsundir verslana á þessu svæði nýta nú þegar hugbúnað sem LS Retail hefur þróað á undanförnum árum, m.a. fjöldi verslana í flugstöðinni í Dubai og hinum stóru verslunarmiðstöðvum borgarinnar. Í ávarpi rakti forseti þróun hugbúnaðarfyrirtækja á Íslandi og hvernig þau hefðu nýtt samvinnu við aðila á heimamarkaði til að þróa vöru sem gjaldgeng væri á heimsvísu.