Veftré Print page English

Heimsþing hreinnar orku


Forseti sækir Heimsþing hreinnar orku, World Future Energy Summit, sem haldið er í Abu Dhabi og tekur þátt í opnunarathöfn þingsins. Ásamt Heimsþingi um nýtingu vatns og sérstöku þingi um málefni hafsins, Blue Economy, er Heimsþing hreinnar orku meðal helstu viðburða á viku sem helguð er sjálfbærni, Abu Dhabi Sustainability Week. Þessa viðburði sækir mikill fjöldi forystumanna víða að úr veröldinni, sérfræðingar og stjórnendur stofnana og fyrirtækja.