Veftré Print page English

Samstarf við Maine


Forseti á fund með sendinefnd frá Maine ríki í Bandaríkjunum sem heimsækir Ísland til að undirbúa ferð ríkisstjórans Paul LePage til Íslands í vor ásamt sendinefnd frá viðskiptalífi Maine. Heimsóknin er í framhaldi af viðræðum forseta við ríkisstjórann í Portland á síðasta ári þegar Eimskip hóf reglubundnar siglingar til borgarinnar. Rætt var um aukið viðskiptasamstarf á Norðurslóðum og áform Maine ríkis um víðtæka þátttöku í þróun þess.