Veftré Print page English

Þróunarsamvinna. Jarðhiti og matvæli


Forseti á fund með Engilbert Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, um margvísleg jarðhitaverkefni, sem unnið er að í Afríku, samstarf Þróunarsamvinnustofnunar við Afríkusambandið og ýmsar aðrar alþjóðastofnanir. Einnig var rætt um alþjóðlegt samstarfsverkefni um þurrkun matvæla sem byggt yrði á reynslu og tækniþekkingu Íslendinga.