Veftré Print page English

Sendiherra Ítalíu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Ítalíu, hr. Giorgio Novello, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um langvarandi samstarf þjóðanna á sviði viðskipta og menningar og innan margvíslegra alþjóðastofnana sem og framlag Ítalíu til þróunar Norðurslóða í ljósi áheyrnaraðildar landsins að Norðurskautsráðinu. Einnig lýsti sendiherrann miklum áhuga á þátttöku fulltrúa frá Ítalíu í væntanlegu Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, sem haldið verður í Reykjavík í september. Mynd.

 

640pix__MG_7676Italia