Veftré Print page English

Bandarískir guðfræðinemar


Forseti hittir hóp nemenda í guðfræði frá Wartburg Seminary í Dubuque í Iowa sem heimsækja Ísland til að kynna sér trúarlíf og kirkjustarf. Rætt var um eðli íslensku þjóðkirkjunnar, fjölmenningarsamfélag síðustu ára, lýðræðislegt val á prestum sem og sess kirkjunnar í sögu, skáldskap og menningu.