Veftré Print page English

Samstarf viðskiptaráða


Forseti á fund með formönnum og fulltrúum ýmissa viðskiptaráða, sem sinna samskiptum Íslands við önnur lönd, um þær breytingar sem orðið hafa í íslensku atvinnulífi og tækifæri á sviði orku, upplýsingatækni og Norðurslóða. Einnig var rætt um mikilvægi þess að atvinnulíf, fjölmiðlar og þjóðin öll átti sig á þeim hröðu breytingum sem á næstu árum munu hafa mikil áhrif á stöðu Íslands.