Veftré Print page English

Líftækni


Forseti á fund með Róbert Wessmann um þróun líftækni og nýjar starfsstöðvar Alvogen þar sem ætlunin er að þróa lyf. Byggingin verður reist í samvinnu við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík og stefnir fyrirtækið að því að vera í fararbroddi varðandi nýtingu líftækni við þróun nýrra lyfja. Einnig var rætt um aðferðir til að ná tökum á afnámi gjaldeyrishafta og uppgjöri bankanna til að treysta fjárhagslegan stöðugleika og grundvöll íslensks atvinnulífs.