Veftré Print page English

Staða kvenna. UN Women


Forseti á fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem veitt hefur forstöðu UN Women í Afganistan og verður nú svæðisstjóri með aðsetur í Tyrklandi. Rætt var um stöðu kvenna í þessum heimshluta og reynsluna af starfi UN Women. Þá var einnig rætt um þróun þjóðmála á Íslandi og mikilvægi þess að sagnfræðilegar heimildir um umbrotaskeið síðustu 20 ára væru til reiðu fyrir komandi kynslóðir.