Veftré Print page English

Norðurskautsráðið


Forseti á fund með framkvæmdastjóra Norðurskautsráðsins, Magnúsi Jóhannessyni, um starfsemi ráðsins, einkum eftir að samþykkt var að veita forysturíkjum í Evrópu og Asíu áheyrnaraðild að því. Þá var rætt um málefnastarf á vegum ráðsins sem fram fer í fjölmörgum nefndum sérfræðinga og vísindamanna. Einnig var rætt um árangurinn af alþjóðaþinginu Arctic Circle sem haldið var í Reykjavík í október og hvernig sá vettvangur getur nýst Norðurskautsráðinu.