Veftré Print page English

Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumanna


Forseti er heiðursgestur í hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumanna og flytur ávarp í lok hans. Í því þakkaði forseti framlag matreiðslumanna til að efla gæði og fjölbreytileika matarmenningar þjóðarinnar og treysta getu landsmanna til að taka vel á móti þeim fjölda ferðamanna sem nú heimsækja Ísland. Menning, náttúra og matur eru meðal þeirra þátta sem í vaxandi mæli stuðla að ánægju þeirra hundruð þúsunda ferðamanna sem heimsækja Ísland.