Samstarf við Grænland
Forseti á fund með Pétri Ásgeirssyni sendiherra, sem stýrir sendiskrifstofu Íslands á Grænlandi, um vaxandi samstarf landanna á fjölmörgum sviðum, breytingar í efnahagslífi og þjóðmálum Grænlendinga, sameiginlega hagsmuni Íslendinga og Grænlendinga á komandi árum og aukna þátttöku íslenskra fyrirtækja í efnahagslífi Grænlands. Einnig var fjallað um þátttöku Grænlendinga í Arctic Circle - Hringborði Norðurslóða og vaxandi áhuga á alþjóðlegri þátttöku meðal forystumanna á Grænlandi.