Veftré Print page English

Alþjóðleg starfsemi LS Retail


Forseti á fund með Magnúsi Norðdahl forstjóra LS Retail og Sveini Áka Lúðvíkssyni sölustjóra um umfangsmikinn vöxt fyrirtækisins á undanförnum árum, starfsemi í Asíu, Mið-Austurlöndum, Evrópu og víðar. Fyrirtækið er eitt glæsilegasta dæmið um árangur íslenskra fyrirtækja á sviði hugbúnaðar og upplýsingatækni en hugbúnaður þess er nú notaður í þúsundum fyrirtækja vítt og breitt um veröldina.