Veftré Print page English

Þurrkun matvæla


Forseti á fund með Sigurjóni Arasyni, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingi hjá Matís, um reynslu Íslendinga af þurrkun sjávarfangs með jarðhita en hann hefur verið einn helsti tæknilegur ráðgjafi þeirrar þróunar á undanförnum áratugum. Stefnt er að víðtæku alþjóðlegu samstarfi um þurrkun margvíslegra matvæla en forseti hefur unnið að því verkefni í samvinnu við ýmsar alþjóðastofnanir og íslensk fiskþurrkunarfyrirtæki.