Sendiherra Búrúndís
Forseti á fund með nýjum sendiherra Búrúndís á Íslandi, hr. Pascal Ruhomvyumworo, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum en hann er jafnframt fyrsti sendiherra landsins gagnvart Íslandi. Stjórnvöld í Búrúndí hafa mikinn áhuga á að nýta reynslu Íslendinga við fiskveiðar og nýtingu jarðhita en mikilvægt væri fyrir landið að greiða götu efnahagslegrar þróunar í kjölfar þeirra miklu erfiðleika sem glímt hefði verið við á undanförnum áratugum.