Veftré Print page English

Sendiherra Portúgals


Forseti á fund með nýjum sendiherra Portúgals á Íslandi, frú Clara Nunes dos Santos, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um reynslu Íslands og Portúgals í glímunni við fjármálakreppuna en hún hefur haft hrikalegar afleiðingar fyrir efnahagslíf og lífskjör í Portúgal. Rakti sendiherrann áhuga fjölmargra aðila í Portúgal á að kynna sér þann árangur sem Íslendingar hafa náð og hvernig hér var litið á fjármálakreppuna ekki aðeins frá sjónarhóli fjármála heldur einnig lýðræðis og félagslegs réttlætis.

 

3