Sendiherra Indónesíu
Forseti á fund með sendiherra Indónesíu á Íslandi, frú Esti Endayani, sem senn lætur af störfum. Rætt var um þann árangur sem náðst hefur varðandi samvinnu á sviði jarðhitanýtingar og áhuga stjórnvalda í Indónesíu á að efla hann enn frekar. Þá var einnig rætt um mikilvægi sjálfbærrar nýtingar á auðlindum hafsins en vegna stærðar og legu landsins býr það að víðáttumiklum hafsvæðum sem rík eru að sjávarfangi.