Veftré Print page English

Sendiherra Botsvana


Forseti á fund með nýjum sendiherra Botsvana á Íslandi, hr. Lameck Nthekela, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um árangur Botsvana á sviði lýðræðisþróunar, kynjajafnréttis og efnahagsmála og hvernig smærri lönd í Afríku geta lært af reynslu smárra og meðalstórra landa eins og Íslands. Þá var einnig fjallað um áform landsins um landgræðslu og jákvæða reynslu af víðtæku samstarfi við Norðurlönd á undanförnum áratugum.

 

botsvana