Veftré Print page English

Sendiherra Mósambíks


Forseti á fund með nýjum sendiherra Mósambíks á Íslandi, fr. Frances Victória Velho Rodrigues, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um fjölþætta þróunaraðstoð Íslands í Mósambík sem einkum hefur miðað að uppbyggingu í sjávarútvegi, menntun og heilbrigðismálum. Stjórnvöld í Mósambík meta framlag Íslendinga mikils enda hefur fjölþættur árangur náðst en samstarfið hefur einnig veitt Íslendingum margvíslega lærdóma og reynslu sem nýtist í samstarfi við önnur lönd í Afríku.

 

mosambik