Veftré Print page English

Sendiherra Mongólíu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Mongólíu á Íslandi, hr. Narkhuu Tulga, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um efnahagsþróun í landinu og fjölþætt samstarf og tengsl við nágrannalöndin Kína og Rússland. Einnig var fjallað um áhuga Mongólíu á að læra af reynslu Íslendinga í landgræðslu og baráttu við svarta sanda sem og hvernig jarðhiti hefur verið nýttur í þágu smærri byggða og héraða, bæði með hitaveitum, ylrækt og baðstöðum.

 

mongolia