Veftré Print page English

Samúðarkveðja vegna andláts Nelsons Mandela


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í morgun Jacob Zuma, forseta Suður-Afríku, samúðarkveðjur sínar og íslensku þjóðarinnar vegna andláts Nelsons Mandela, fyrsta lýðræðislega kjörna forseta Suður-Afríku.


Í kveðjunni minnist forseti friðsamlegrar og árangursríkrar mannréttindabaráttu sem Mandela veitti forystu og hafði djúpstæð áhrif um allan heim. Nelson Mandela markaði djúp spor í baráttunni fyrir jafnrétti allra manna og verður minnst fyrir óbilandi kjark, ríka réttlætiskennd og mannúð.


6. desember 2013