Veftré Print page English

Fundur með forseta Króatíu


Forseti á fund með forseta Króatíu, Ivo Josipović, í Zagreb. Rætt var um árangur Íslendinga í endurreisn efnahagslífsins í kjölfar fjármálakreppunnar og möguleika á víðtækri jarðhitanýtingu í Mið- og Austur-Evrópu í samvinnu við íslensk verkfræði- og orkufyrirtæki. Þá var einnig fjallað um stöðu Króatíu og flókna sambúð við nágrannaríkin í kjölfar hinna miklu breytinga og átaka sem orðið hafa í þessum hluta Evrópu á síðustu 20 árum. Myndir.