Veftré Print page English

Zayed verðlaunin. Blaðamannafundur


Forseti situr fyrir svörum ásamt öðrum dómnefndarmönnum á blaðamannafundi vegna Zayed orkuverðlaunanna. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á hátíðarsamkomu 20. janúar næstkomandi sem haldin er í tengslum við Heimsþing hreinnar orku (World Future Energy Summit). Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum og nemur verðlaunaféð samtals fjórum milljónum bandaríkjadala. Vefsíða Zayed nýorkuverðlaunanna. Vefsíða WFES framtíðarorkuþingsins.