Veftré Print page English

Zayed verðlaunin. Dómnefnd


Forseti stýrir fundi dómnefndar Zayed orkuverðlaunanna, Zayed Future Energy Prize, sem haldinn er í Abu Dhabi. Verðlaunin eru í nokkrum flokkum og eru m.a. veitt einstaklingi sem skilað hefur merku ævistarfi í þágu hreinnar orku, samtökum og fyrirtækjum sem skarað hafa framúr í slíkri orkunýtingu. Annað árið í röð voru framhaldsskólum, einum í hverri heimsálfu, einnig veitt verðlaun fyrir verkefni nemenda á sviði sjálfbærrar orkunýtingar í skóla sínum.