Lions. Styrktartónleikar BUGL
Forseti sækir stórtónleika, sem haldnir eru í Grafarvogskirkju af Lionsklúbbnum Fjörgyn, en allur ágóði af tónleikunum rennur til Barna- og unglingadeildar Landspítalans, BUGL. Fjöldi tónlistarmanna kom fram og gáfu þeir allir vinnu sína til styrktar málefninu.