Alþjóðabankinn og íslensk jarðhitareynsla
Forseti á fund með forseta Alþjóðabankans, Jim Yong Kim, sem tekur þátt í fundum með stjórnarmönnum bankans sem haldinn er á Íslandi. Rætt var um margvíslegan árangur Íslendinga við nýtingu jarðhita, einkum við þurrkun matvæla, og möguleika þróunarlanda til að nýta jarðhita við orkuframleiðslu og til að tryggja matvælaöryggi. Fundurinn var haldinn í Svartsengi. Myndir frá Svartsengi (ljósmyndari: Randver Randversson) og frá Saltfisksetrinu í Grindavík (ljósmyndir: Þorsteinn Gunnarsson).