Veftré Print page English

Samúðarkveðja til forseta Filippseyja


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í dag þriðjudaginn 12. nóvember samúðarkveðju til forseta Filippseyja, Benigno Aquino, vegna hrikalegrar eyðileggingar af völdum fellibylsins Haiyan. Þúsundir hafa látið lífið og fjöldi á um sárt að binda; börn og fjölskyldur glíma við mikinn harm.


Í kveðjunni minnti forseti á orð fulltrúa Filippseyja á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi sem sagði að þessir átakanlegu atburðir verði vonandi til þess að hvetja heimsbyggðina til aðgerða sem komið gætu í veg fyrir afdrifaríkar breytingar  á loftslagi jarðar en aukin tíðni fellibylja eigi rætur að rekja til þeirra.


Hugur Íslendinga og hins öfluga samfélags fólks frá Filippseyjum á Íslandi er hjá íbúum Filippseyja á þessum erfiðu tímum.


12. nóvember 2013