Veftré Print page English

Orkuþing í London


Forseti flytur ræðu á orkuþingi sem Bresk-íslenska viðskiptaráðið efnir til í samvinnu við Bloomberg í London en þingið var haldið í höfuðstöðvum Bloomberg. Fjallað var um orkubúskap Íslendinga og samvinnu við erlenda aðila sem og þörf Bretlandseyja fyrir vatnsaflsorku sem flutt yrði um sæstreng til að styrkja orkukerfi landsins. Einnig var gerð grein fyrir góðri reynslu af starfrækslu gagnavera á Íslandi, lærdómana af þróun jarðhitanýtingar og framtíð Norðurslóða. Upptaka af ræðu forseta.