Veftré Print page English

SÍBS 75 ára


Forseti flytur ávarp á hátíðarsamkomu í tilefni af 75 ára afmæli SÍBS. Jafnframt tekur forseti við eintaki af sögu samtakanna Sigur lífsins. Í ávarpi áréttaði forseti hvernig SÍBS hefði rutt brautina fyrir samtök sjúklinga, aðstandenda og annarra velunnara sem nú setja svip sinn á íslenska heilbrigðisþjónustu. Mikilvægt væri að sagan um glímuna við berklana væri varðveitt af þjóðinni. SÍBS hefði sýnt hvernig samtakamáttur fólksins væri mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu Íslendinga.