Veftré Print page English

World Food Prize


Forseti er heiðursgestur á verðlaunahátíð World Food Prize sem haldin er í sal fulltrúadeildar ríkisþings Iowa. Verðlaunin voru stofnuð af Norman Borlaug, handhafa friðarverðlauna Nóbels og frumkvöðli Grænu byltingarinnar. Meðal viðstaddra við athöfnina voru ríkisstjóri Iowa, þingmenn og forystumenn ríkisins, vísindamenn, sérfræðingar og fulltrúar almannasamtaka víða að úr veröldinni. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1987 vísindamönnum og baráttufólki, sem skipt hafa sköpum í glímunni gegn fátækt og hungri, fyrir árangur í að tryggja öllum íbúum jarðar næga fæðu. Vefsetur verðlaunanna.