Veftré Print page English

Alþjóðaþingið Arctic Circle


Forseti tekur þátt í og stýrir málstofum á alþjóðaþinginu Arctic Circle - Hringborð Norðurslóða en þriggja daga fundum þess lýkur í dag í Reykjavík. Við lok þingsins áttu forseti og aðrir forráðamenn Arctic Circle viðræður við fulltrúa fjölmargra stofnana og samtaka sem tekið hafa þátt í Arctic Circle. Mikil ánægja var með árangurinn af þinginu og komu fram margar hugmyndir og tillögur um hvernig bæta mætti ýmislegt í framkvæmd og hvernig haga bæri samræðum og dagskrárefnum á næsta ári.